Daníel Björnsson

Daníel Björnsson

Kaupa Í körfu

TRÉ ÚR afgangsspýtum, innrautt ljós og tvær gamlar myndir á veggjum er það sem blasir við þegar litið er inn í D-sal Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsi. En það er ekki allt sem sýnist. Daníel Karl Björnsson heitir myndlistarmaðurinn sem á innsetninguna, sem ber titilinn Reitur. Verkið var ekki fullklárað þegar blaðamann bar að garði í gær, en lítið sem átti eftir að gera að sögn Daníels, bæta við nokkrum stenslamyndum. MYNDATEXTI: Reitur - Daníel Björnsson í D-sal Hafnarhússins, í innsetningu sinni miðri, með afgangatréð góða í bakrgunni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar