Nýdönsk

Nýdönsk

Kaupa Í körfu

NASA | Ein af elstu starfandi poppsveitum Íslands, Nýdönsk, kemur fram á Nasa í kvöld og stendur fyrir dansleik, þar sem hún mun væntanlega leika mörg af sínum þekktustu lögum. Þeir félagar hittast ekki oft, en þegar þeir gera það ku góðir hlutir gerast. Í gær komu nýdanskir saman í myndveri Stöðvar tvö og léku listir sínar fyrir áhorfendur dægurþáttarins Ísland í dag. Björn Jörundur Friðbjörnsson, söngvari og bassaleikari Nýdanskrar, er einnig forsprakki sveitarinnar Íslenska fánans. Það var þó ekki laust við að andrúmsloftið væri litað af heimsókn sænsku konungshjónanna þegar þeir félagarnir heilsuðu ljósmyndara Morgunblaðsins að leiknum loknum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar