Geir Ólafsson

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Geir Ólafsson

Kaupa Í körfu

Tónlistarmaðurinn Geir Ólafsson var staddur í fríi á Kanaríeyjum síðustu jól. Þar kynntist hann frönskum píanóleikara sem spilaði á hótelbarnum, og í kjölfarið söng Geir með honum tvö kvöld. Annað kvöldið bar að breskan auðkýfing sem hreifst mjög af Geir og bauð honum út að borða. Varð þeim vel til vina og hefur Bretinn lofað Geir styrk til þess að taka upp plötu með big-bandi, og halda svo tónleika í kjölfarið. Geir ætlar að ganga í málið sem fyrst og því ljóst að aðdáendur hans eiga von á góðu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar