Valur - FH

Sverrir Vilhelmsson

Valur - FH

Kaupa Í körfu

"EF VIÐ mætum ekki eins og öskrandi ljón í þennan leik þá gerum við það aldrei," var haft eftir Baldri Ingimar Aðalsteinssyni, miðjumanni Vals, í Morgunblaðinu í gær. Það reyndust orð að sönnu því Íslandsmeistarar FH sáu aldrei til sólar á Laugardalsvellinum í gærkvöldi. Staðan í leikhléi var 3:0 og þrátt fyrir örlítinn eldmóð í upphafi síðari hálfleiks var róðurinn of þungur fyrir FH-inga og Valsmenn fóru með 4:1-sigur af hólmi. MYNDATEXTI: Sjálfsmark - Hafþór Ægir, leikmaður Vals, á fasta sendingu fyrir mark FH. Boltinn hafnar í Tommy Nielsen og í netinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar