Leikvöllur við Grjótagötu

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Leikvöllur við Grjótagötu

Kaupa Í körfu

EF rétt reynist þá er þetta er ótrúlegur yfirgangur af hálfu borgarstjórnar Reykjavíkur og afar ólýðræðisleg ákvörðun," segir Sverrir Guðjónsson, formaður Íbúasamtaka Grjótaþorps, sem í gær varð var við að arkitekt Minjaverndar væri að mæla upp garðinn á milli húsanna Grjótagötu 6 og 12. "Mér var tjáð að borgarstjóri hefði ákveðið að þarna ætti að koma Gröndalshúsinu fyrir," segir Sverrir og er afar ósáttur við að slík ákvörðun sé tekin innan borgarkerfisins án þess að samráð sé haft við íbúa Grjótaþorpsins. Bendir hann á að á umræddri lóð sé leikvöllur fyrir börn hverfisins og að garðurinn sé einn af fáum opnum svæðum innan Grjótaþorpsins MYNDATEXTI Leikvöllurinn Mælt hefur verið fyrir Gröndalshúsinu við Grjótagötu í Grjótaþorpinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar