Pósthússtræti

Brynjar Gauti

Pósthússtræti

Kaupa Í körfu

Í tillögunni sem varð hlutskörpust í samkeppni um nýtt skipulag í Kvosinni er reynt að sætta ólík sjónarmið. Þar er eitthvað fyrir alla, bæði gert ráð fyrir að byggð verði ný hús og gömul varðveitt, og ber ekki á öðru en almenn sátt ríki um hugmyndirnar sem þar eru settar fram. Ein þeirra kom mér þó verulega á óvart, en í tillögunni segir um Pósthússtræti 9: "Húsið verði endurbætt í sömu mynd en gert eins vandað og kostur er. Þar sem það stendur milli Hótels Borgar og húss Nathans og Olsens er það áhrifamikið dæmi um sögulega breytingu á listrænu mati arkitekta á 20. öld." Er virkilega þörf á því að varðveita nákvæmlega þetta hús? Sérfræðingar Árbæjarsafns segja í húsakönnun sinni að húsið hafi lítið menningarsögulegt gildi, það sé framandi í götumyndinni og þar er ekki gerð tillaga að varðveislu þess.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar