Þing ASÍ /

Friðrik Tryggvason

Þing ASÍ /

Kaupa Í körfu

Átök í kringum kosningar settu sterkan svip á síðari dag ársfundar Alþýðusambandsins í gær. Tvær konur sóttust eftir embætti varaforseta ASÍ. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, formaður Landssambands verslunarmanna, gaf kost á sér til endurkjörs sem varaforseti og Signý Jóhannesdóttir, formaður Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði, lýsti einnig framboði sínu til varaforseta af hálfu Starfsgreinasambandsins (SGS). MYNDATEXTI LEGGJA á megináherslu á að ná auknum kaupmætti í komandi samningum, að mati Más Guðnasonar, Verkalýðsfélagi Suðurlands á Hellu. "Við þurfum að hækka lægstu launin og stóra málið er kaupmáttaraukning," segir hann. Már segir að í verkalýðshreyfingunni vilji menn forðast kollsteypur sem leiði af sér verðbólgu og að launahækkanir skili sér ekki. ,,Auðvitað eru menn í hita bardagans að tala um einhverjar prósetnutölur og jafnvel einhverjar lágmarksupphæðir, en þegar í alvöruna er komið vita menn vel að það gengur ekki," segir hann. Már segir að allir séu á einu máli um að hækka þurfi lægstu launin. ,,Það hefur verið unnið að því af hálfu verkalýðshreyfingarinnar, en eins og talað er um í samfélaginu í dag hefur svokallað sjálftökulið breytt þessu landslagi. Það hefur gert að verkum að fólki er orðið heitt í hamsi og vill fá meira. Ég er sannfærður um að þegar í alvöruna er komið eru allir á því að sækja kaupmáttaraukningu sem skilar sér í umslagið. Allir hagnast á því."

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar