Þing ASÍ /
Kaupa Í körfu
Átök í kringum kosningar settu sterkan svip á síðari dag ársfundar Alþýðusambandsins í gær. Tvær konur sóttust eftir embætti varaforseta ASÍ. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, formaður Landssambands verslunarmanna, gaf kost á sér til endurkjörs sem varaforseti og Signý Jóhannesdóttir, formaður Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði, lýsti einnig framboði sínu til varaforseta af hálfu Starfsgreinasambandsins (SGS). MYNDATEXTI HÆKKUN lægstu launa og úrbætur í húsnæðismálum sem brenna mjög á stórum hópi fólks í láglaunastéttum," svarar Jón Jónsson, fulltrúi frá Verkalýðsfélagi Akraness á ársfundi ASÍ, er hann var spurður hver væru brýnustu viðfangsefnin að hans mati við endurnýjun kjarasamninganna í vetur. "Þetta eru stærstu málin að mínu mati," segir Jón og leggur áherslu á að ganga verði þannig frá málum í samningunum að samið verði um tryggingar svo hækkun lægstu launa skili sér í raunverulegum kjarabótum fyrir láglaunafólkið. Þrýstingur þeirra sem eru betur settir hefur haldið niðri lægstu laununum – Af hverju hafa laun hinna lægst launuðu setið eftir í launaþróuninni að undanförnu? "Það er þrýstingur þeirra sem eru betur settir í þjóðfélaginu. Þeir sem eru minni máttar fá ekki að njóta sín. Ég vona að þessi krafa verði sótt fast í komandi kjaraviðræðum," segir hann
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir