Opnun sýningar í Þjóðarbókhlöðu
Kaupa Í körfu
GEIR H. Haarde forsætisráðherra opnaði sérstaka sýningu í Þjóðarbókhlöðunni í gær í tilefni af útkomu nýrrar íslenskrar biblíuþýðingar þar sem um er að ræða fyrstu heildarþýðingu biblíunnar frá árinu 1912. Eins árs undirbúningsvinna liggur að baki sýningunni í Þjóðarbókhlöðunni og er sýningarstjóri Emelía Sigmarsdóttir. Meðal fágætra muna á sýningunni er Guðbrandsbiblía frá árinu 1584 sem talin er ein mesta gersemi íslenskrar bókagerðar. Sýningin stendur til áramóta en þeir sem standa að henni eru Hið íslenska biblíufélag, Guðfræðideild Háskóla Íslands, Íslensk málnefnd, Þýðingarsetur Háskóla Íslands, Skálholtsskóli og Landsbókasafn Íslands - háskólabókasafn. Sýningin fjallar um biblíuþýðingar með nokkurri áherslu á þá þýðingu sem nú hefur litið dagsins ljós og dregur jafnframt fram eldri biblíuþýðingar á liðnum öldum. Við opnun sýningarinnar hélt biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, ávarp og þá var þýðingarnefnd þökkuð vel unnin störf með því að afhenda nefndarmönnum eintak biblíunnar. Jafnframt fengu fulltrúar í samstarfsnefnd trúfélaga á Íslandi eintak. Í gærmorgun fékk forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson fyrsta eintak þýðingarinnar við hátíðlega athöfn í Dómkirkjunni og skömmu síðar, í Alþingishúsinsu, fengu forseti Alþingis, forsætisráðherra og kirkjumálaráðherra sitt eintakið hver. MYNDATEXTI Sýning Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, flytur ávarp í Þjóðarbókhlöðunni við opnun sýningarinnar. Ein mesta gersemi íslenskrar bókagerðar er á sýningunni, Guðbrandsbiblía frá árinu 1584.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir