Aðalfundur Orkuveitu Reykjavíkur

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Aðalfundur Orkuveitu Reykjavíkur

Kaupa Í körfu

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur ákveðið að fallast á tilmæli borgarráðs og falla frá samþykktum stjórnarfundarins 3. október síðastliðinn í tengslum við samruna Reykjavik Energy Invest og Geysir Green Energy. Stjórnin greip jafnframt til tiltekinna ráðstafana til að tryggja fjárhagslega hagsmuni félagsins. MYNDATEXTI Samruni úr sögunni Stjórn Orkuveitunnar er skipuð sex mönnum, fimm kjörnum af borgarstjórn Reykjavíkur og einum kjörnum af bæjarstjórn Akraness. Nýja stjórn skipa Bryndís Hlöðversdóttir formaður, Ástráður Haraldsson, Jón Sigurðsson, Kjartan Magnússon og Júlíus Vífill Ingvarsson. Fulltrúi Akranessbæjar er áfram Gunnar Sigurðsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar