Árekstur á Miklubraut og Grensásvegi

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Árekstur á Miklubraut og Grensásvegi

Kaupa Í körfu

MIKLAR tafir urðu á umferð vegna umferðarslyss sem varð á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar rétt fyrir klukkan fjögur í gærdag. Áreksturinn varð harður og mildi þykir að ekki hafi orðið alvarleg slys á fjórum einstaklingum sem í bílunum voru. Tildrög slyssins voru þau að fólksbifreið og sendibifreið skullu saman á gatnamótunum með þeim afleiðingum að sendibifreiðin valt á hliðina. Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu vegna árekstursins og þrír sjúkrabílar sendir á vettvang ásamt tækjabíl frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Loka þurfti fyrir umferð vestur eftir Miklubraut á meðan slökkvilið hreinsaði upp olíu og bílarnir voru dregnir af vettvangi. Á tíma náði röð bíla nánast frá Grensásvegi að Elliðaám. Umferð komst í samt lag á fimmta tímanum

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar