Eygló og hundaranir
Kaupa Í körfu
Þeir eru miklir félagar og halda að þeir séu miklu stærri en þeir eru enda eru stórir hundar skíthræddir við þá. Það er þeim nóg að sýna svipinn og þá lúffa þeir stóru fyrir þessum ljúflingum. Það má því segja að þeir eigi sér stóran hug í litlum búk. Í þeim blundar líka mikið varðhundaeðli og það er algjörlega hægt að treysta þeim fyrir að láta vita af gestum, boðnum jafnt sem óboðnum," segir Eygló Þorgeirsdóttir, níu ára nemandi í Vatnsendaskóla, sem hefur alla tíð vanist því að hafa hunda og hesta í kringum sig. Fjórir ferfætlingar hlaupa um Foreldrar Eyglóar, þau Klara Hafsteinsdóttir og Þorgeir Björgvinsson, hafa verið í hestamennsku undanfarin átján ár, en fengu sér fyrst hund á heimilið eftir að þau fluttu í einbýlishús árið 1995. Og nú eru fjórir ferfætlingar á heimilinu, einn rakki og þrjár tíkur, sem heita Þór, Destený, Fantasía og Mirra. Allir eru þeir af hundakyninu Yorkshire Terrier nema hún Mirra, sem er af Griffon-kyni. MYNDATEXTI Heimasætan Eygló Þorgeirsdóttir með heimilishundana, þá Þór, Destený, Fantasíu og Mirru
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir