Jón Friðjónsson
Kaupa Í körfu
ÉG ER ósammála þessu öllu! Við fengum valinn hóp af fólki til að lesa yfir og mér dettur ekki í hug að þetta ágæta, vandaða fólk hafi ekki verið starfi sínu vaxið.“ Það var þungi í orðum Guðrúnar Kvaran, formanns þýðingarnefndar Gamla testamentisins, sem einnig sat í þýðingarnefnd Nýja testamentisins, þegar hún brást við athugasemdum Jóns G. Friðjónssonar málfræðings um nýju biblíuþýðinguna á málþingi í Skálholti um helgina. „Hvað heldurðu að við höfum verið að gera öll þessi ár?“ spurði hún. Jón sýndi mörg dæmi þar sem hann bar saman setningar úr nýju Biblíunni og eldri útgáfum. Margt var hann ósáttur við þótt hann hrósaði öðru. Sagðist hann telja ágallana of mikla. Framsetning og málfar væri ekki nógu vandað, stíllinn væri rislítill og íslenskri biblíumálshefð ekki fylgt. „Nýja Biblían veldur vonbrigðum að þessu leyti,“ sagði Jón. MYNDATEXTI Jón G. Friðjónsson
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir