Ólafsvíkurkirkja

Alfons Finnsson

Ólafsvíkurkirkja

Kaupa Í körfu

Ólafsvík | Ólafsvíkurkirkja átti fjörutíu ára vígsluafmæli á dögunum. Af því tilefni var sungin hátíðarmessa í kirkjunni sunnudaginn 18. nóvember. Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, prédikaði, Magnús Magnússon, sóknarprestur í Ólafsvík, þjónaði fyrir altari ásamt Friðriki Hjartar og Guðmundi Karli Ágústssyni, fyrrverandi sóknarprestum í Ólafsvík. Einnig lásu tveir aðrir fyrrverandi sóknarprestar ritningarlestra, þeir Ágúst Sigurðsson og Óskar Hafsteinn Óskarsson en meðhjálpari var Pétur Bogason. MYNDATEXTI Athöfn Fjöldi fyrrverandi sóknarpresta tók þátt í hátíðarmessunni ásamt biskupi Íslands og sóknarprestinum í Ólafsvíkurprestakalli.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar