Emma Elísa Hjartardóttir og Sigrún Eva Rúnarsdóttir

Brynjar Gauti

Emma Elísa Hjartardóttir og Sigrún Eva Rúnarsdóttir

Kaupa Í körfu

Íbúar í Háaleiti hafa fengið sig fullsadda af slysagildru við Fellsmúla ÍTREKUÐ slys á börnum og unglingum á mótum Háaleitisbrautar og Fellsmúla valda íbúum í hverfinu gífurlegum áhyggjum og hefur verið gengið frá undirskriftalistum með kröfum til borgaryfirvalda um úrbætur. Nú síðast í fyrradag varð enn eitt slysið þegar ekið var á 14 ára stúlku á gangbraut, Emmu Elísu Hjartardóttur, með þeim afleiðingum að hún tvíhandleggsbrotnaði. Að minnsta kosti þrívegis áður hefur verið ekið á börn á gangbrautinni og því til viðbótar má nefna að Emma Elísa hefur tvívegis orðið fyrir bíl á þessum stað. MYNDATEXTI Emma Elísa með móður sinni, Sigrúnu Evu Rúnarsdóttur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar