Valur - Haukar 23:22

Valur - Haukar 23:22

Kaupa Í körfu

MARKVÖRÐURINN Ólafur Haukur Gíslason átti einn stærsta þáttinn í að tryggja Val sæti í undanúrslitum bikarkeppni HSÍ, Eimskipsbikarnum, með sigri á Haukum, 23:22, í sannkölluðum bikarleik í íþróttahúsi Vals síðdegis í gær þar sem Íslandsmeistararnir mættu efsta liði úrvalsdeildar karla. MYNDATEXTI: Barátta Andri Stefan, leikmaður Hauka, komst lítt áleiðis gegn Erni Hrafni Arnarsyni og Fannari Friðgeirssyni, leikmönnum Vals, sem gáfu ekkert eftir í vörninni enda fór svo að Valsmenn fögnuðu sigri og sæti í undanúrslitum bikarkeppninnar ásamt Akureyri. Í kvöld kemur í ljós hvaða lið fylgja Val og Akureyri eftir þegar Fram mætir Stjörnunni í íþróttahúsi Fram og Þróttur úr Vogum leikur við Víkinga í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar