Þakið af vatnstanknum fauk

Þakið af vatnstanknum fauk

Kaupa Í körfu

UM HELMINGUR af þaki kaldavatnstanksins á Blönduósi fauk af í veðurofsanum á föstudagskvöldið. Að sögn er hér um nokkurra milljóna króna tjón að ræða. Vatnstankurinn stendur rétt við veðurmæli Vegagerðarinnar, skammt austan við Blönduós, en þar fór vindur í 43 metra á sekúndu í hviðum þannig að mikið hefur gengið á. Brakið af tankinum, sem er úr trefjaplasti, dreifðist um nágrennið en ekki er vitað til að það hafi valdið tjóni. Starfsmenn frá Krák á Blönduósi hófu viðgerð á þakinu á laugardagsmorgun því mikilvægt var að loka tankinum fyrir veðri og vindum. Viðgerðarmenn höfðu allan vara á við viðgerðina og höfðu björgunarhring til taks því vatnsdýptin er um 4 metrar. Ekki er vitað um annað meiri háttar tjón á Blönduósi í óveðrinu á föstudag.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar