Tangó maraþon

Tangó maraþon

Kaupa Í körfu

ALLS skráði 71 keppandi sig í tangómaraþon í Iðnó sem var liður í Vetrarhátíð í Reykjavík fyrir helgi. Eftir 18 stunda samfelldan tangódans frá hádegi á laugardag til klukkan 6 á sunnudagsmorgun stóðu sjö þátttakendur eftir. Dregið var um sigurvegara og voru nöfn þeirra Jóseps Guðlaugssonar og Lauru Valentino dregin út. Samtals dönsuðu tangódansararnir sem nam 16 dögum, fimm klukkustundum og 45 mínútum, að sögn Guðbjargar Eysteinsdóttur hjá Tangófélaginu

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar