Öskupoki

Friðrik Tryggvason

Öskupoki

Kaupa Í körfu

Nokkru fyrir öskudag í síðustu viku fékk Guðrún Guðlaugsdóttir tölvubréf frá Hallfríði Ólafsdóttur flautuleikara, þar sem hún sagði frá silkiöskupoka frá 1920 sem verið hafði í eigu Stefáns Thorarensens úrsmiðs. Í pokanum, sem ekki var áður vitað um, var kramarhús með ösku og þýsku ljóði. Ólafur Tómasson, faðir Hallfríðar, sýndi Guðrúnu pokann og sagði henni ágrip af ævisögu Stefáns, sem var móðurbróðir hans. Tölvubréfið sem barst blaðamanni Morgunblaðsins fyrir skömmu hljóðar svo: Sæl og blessuð! Um daginn fannst gamall öskupoki í dóti sem kom frá ömmubróður mínum. Stefán Thorarensen (1897-1975) var úrsmiður á Akureyri og Reykjavík, hann giftist ekki en talaði mikið um veru sína í Þýskalandi á árunum fyrir seinna stríð. MYNDATEXTI Þessi fallegi hvíti silkiöskupoki er án efa gjöf frá ungri stúlku, til þess bendir hið rómantíska ljóð sem hann fól.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar