Gerpla fimleikamót

Gerpla fimleikamót

Kaupa Í körfu

EINBEITNIN skín úr andliti unga mannsins sem var meðal 260 keppenda á bikarmóti í áhaldafimleikum sem fram fór í Versölum í Kópavogi um helgina. Keppendurnir voru á öllum aldri en mikil gróska er í fimleikastarfinu á Íslandi og aðstaða til æfinga víða talin meðal þess besta sem þekkist í Evrópu. Eins og drengurinn sem sveiflar sér fimlega á slánni veit þarf tækni og styrk til verksins og svo virðist sem hann hafi hvort tveggja til að bera.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar