Hundar á verði

Hundar á verði

Kaupa Í körfu

ÞEIR eru vel á verði enda margt sem þarf að varast í henni veröld, hvort sem loðnir ferfætlingar eiga í hlut eða mannfólkið. Hundar eru athugular skepnur sem láta fátt fram hjá sér fara. Sérstakan áhuga hafa þeir á að fylgjast með mannaferðum enda forvitnir mjög. Þá gera þeir eigendum sínum viðvart, enda taka þeir hlutverk sitt sem varðhundar mjög alvarlega. Inn við beinið eru þeir þó langflestir meinlausir og kjósa helst að fá stroku á kollinn eða uppörvandi orð frá eigendum sínum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar