Bílslys á Akureyri

Skapti Hallgrímsson

Bílslys á Akureyri

Kaupa Í körfu

ÞRJÚ ungmenni slösuðust í bílveltu á Akureyri í hádeginu í gær. Ekkert þeirra er í lífshættu en að sögn lækningaforstjóra Sjúkrahússins á Akureyri eru þau öll beinbrotin og tognuð. Tveir karlar, ökumaður og farþegi í framsæti, köstuðust út úr bílnum en hvorugur var með bílbelti spennt. Stúlka var föst í aftursætinu eftir slysið en sjúkraflutningamenn náðu henni út um það bil klukkustund eftir óhappið. ...Slysið varð með þeim hætti að bílnum var ekið niður Borgarbraut á miklum hraða að sögn sjónarvotta.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar