Kassagerðin
Kaupa Í körfu
LÖGREGLUNNI á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um skothvelli og mann með riffil er fór inn í Kassagerðina við Köllunarklettsveg seint í gærkvöldi. Mikill viðbúnaður var vegna málsins. Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út og nærliggjandi götum lokað um tíma, s.s. Sæbraut og Kleppsvegi. Upp úr miðnætti varð hins vegar ljóst að um falska tilkynningu var að ræða. Þrír ungir karlmenn sem voru í porti við Kassagerðina voru þó handteknir. Aðalvarðstjóri sem Morgunblaðið ræddi við bjóst við að þeim yrði sleppt strax. Mennirnir voru ölvaðir. Hvað varðar skothvelli sagði varðstjórinn að rúða hefði verið brotin í anddyri Kassagerðarinnar, það gæti skýrt hávaðann. MYNDATEXTI Þrír ölvaðir ungir menn voru handteknir í aðgerðum lögreglu. Enginn þeirra var þó vopnaður
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir