Hólmasel

Valdís Þórðardóttir

Hólmasel

Kaupa Í körfu

MIKIÐ og gott uppbyggingarstarf fer fram í hinum fjölmörgu félagsmiðstöðvum höfuðborgarsvæðisins og í félagsmiðstöðvunum Hólmaseli og Miðbergi lauk góðgerðarviku í gær. Fjársöfnun fór fram og mun allur ágóði renna til styrktar geðheilbrigðis unglinga. Téðri viku var hleypt af stokkunum síðastliðinn mánudag með svofelldu góðgerðarbíói. Á þriðjudeginum tók fólk svo við að spila hinn gamalkunna og gegna leik bingó. Fjör færðist svo heldur betur í leikinn á miðvikudaginn og máttu starfsmenn hafa sig alla við til að „halda andlitinu“. MYNDATEXTI Hólmasel Ungir tæknimenn voru í óða önn að gera allt klárt fyrir kvöldið þegar ljósmyndara bar að garði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar