Loðnuvinnsla í Bolungarvík

Gunnar Hallsson

Loðnuvinnsla í Bolungarvík

Kaupa Í körfu

GOTT hljóð var í mönnum á Bolungarvík í gær þar sem loðnubræðsla er rekin allan sólarhringinn um þessar mundir. Guðjón Magnússon verksmiðjustjóri segir að komin séu 11.500 tonn af loðnu á land í Bolungarvík og von var á bát í gærkvöldi með 1.000 tonn. Loðnan er öll brædd þar sem enginn er í frystingu á loðnu eða hrognum á svæðinu. Þrettán manns vinna í Loðnubræðslunni Gná í Bolungarvík á vöktum og auk þess hafa nokkrir fengið vinnu við uppskipun MYNDATEXTI: Unnið var við útskipun á loðnumjöli í Bolungarvíkurhöfn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar