Benedikt Erlingsson og Hilmir Snær Guðnason

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Benedikt Erlingsson og Hilmir Snær Guðnason

Kaupa Í körfu

Í TILEFNI 100 ára afmælis hestaréttar Thors Jensen að baki Fríkirkjuvegi 11 riðu leikararnir Hilmir Snær Guðnason og Benedikt Erlingsson ofan úr hesthúsahverfi Gusts í Kópavogi og sem leið lá í Hallargarðinn. Þannig vildu félagarnir minna borgarfulltrúa á að tryggja aðgang að hestaréttinni eftir að Fríkirkjuvegur 11 var seldur. Hilmir og Benedikt vildu jafnframt vekja athygli á þeim lífsgæðum sem svæðið hefur veitt kynslóðum barna í Þingholtunum. Sjálfir segjast þeir hafa kynnst á þessum leikvelli sem krakkar og brallað ýmislegt á þessum stað.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar