Hörður Jónsson og sonurinn Óskar Harðarson
Kaupa Í körfu
Heimilissjóður á að standa undir eðlilegu viðhaldi húsbúnaðar *Ekki hefð fyrir því að leigjendur á almennum markaði taki þátt í tækjakaupum FÖÐUR ungs manns á sambýli fyrir fatlaða í Reykjavík hefur verið tilkynnt að kostnaður vegna kaupa á uppþvottavél eigi að skiptast á heimilisfólkið, sex einstaklinga. Jón Heiðar Ríkharðsson, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra í Reykjavík, segir að vegna fyrstu kaupa á húsbúnaði sé hægt að sækja um styrki til Framkvæmdasjóðs fatlaðra, en annars sé gengið út frá því að íbúar taki þátt í kostnaði eins og við almennt heimilishald. Kristín Sigurjónsdóttir, trúnaðarmaður fatlaðra hjá Þroskahjálp, segir að samkvæmt þessu sitji fatlaðir ekki við sama borð og almennir leigjendur, sem taki ekki þátt í endurnýjun tækja í sameign heldur eigendur hússins. Hörður Jónasson segist hafa fengið þær upplýsingar að frá áramótum eigi íbúar að taka þátt í kostnaði vegna endurnýjunar á húsmunum í sameiginlegu rými, þ.e. í borðstofu, eldhúsi og þvottahúsi. Ef þurfi að kaupa t.d. þvottavél, þurrkara, uppþvottavél, ísskáp, ryksugu eða borðstofuhúsgögn verði íbúarnir að borga. Að sögn Harðar er sonur hans, Óskar, með um 120 þús. kr. í örorkubætur á mánuði. Bæturnar fari í að borga mat, húsaleigu, ferðaþjónustu fatlaðra, lyf, föt og fleira og þá sé ekki mikið eftir.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir