Sighvatur Jónasson - 86 ára sundmaður

Sighvatur Jónasson - 86 ára sundmaður

Kaupa Í körfu

Aldinn sundgarpur HANN lætur sér fátt fyrir brjósti brenna Þingeyingurinn Sighvatur Jónasson sem stingur sér með stæl ofan í sundlaug Grafarvogs eldsnemma á hverjum morgni og syndir tvö hundruð metra. Ekki væri það í frásögur færandi nema vegna þess að í gær varð hann áttatíu og sex ára. Sighvatur er Þingeyingur í húð og hár, hefur gaman af vísum og er tónelskur með eindæmum. MYNDATEXTI: Sækir sund Sighvatur í heita pottinum í sundlaug Grafarvogs. Birtist á baksíðu með tilvísun á bls. 18

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar