Fram - Grindavík

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Fram - Grindavík

Kaupa Í körfu

SKOSKI knattspyrnumaðurinn Scott Ramsay, leikmaður Grindavíkurliðsins, hefur svo sannarlega verið skemmtikraftur á völlum landsmanna í sumar. Hann hefur farið á kostum með Suðurnesjaliðinu í Landsbankadeildinni, með hraða sínum, leikni og útsjónarsemi og það kemur ekki á óvart að hann sé efstur í einkunnagjöf Morgunblaðsins með 11 M eins og KR-ingurinn Guðjón Baldvinsson þegar Íslandsmótið er hálfnað en Ramsay er með einum leik minna. MYNDATEXTI Flinkur Scott Ramsay hefur sýnt mjög skemmtilega takta með Grindvíkingum og á drjúgan þátt í góðri frammistöðu þeirra í úrvalsdeildinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar