Lopi

Friðrik Tryggvason

Lopi

Kaupa Í körfu

Einu sinni var bara til íslensk ull í sauðalitunum. Lopapeysan íslenska, og það þarf ekkert að blessa minningu hennar, því hún lifir enn góðu lífi, var lengi vel eins og íslenska sjónvarpið í árdaga sína. Litirnir svart/hvítir og runnu saman í mismunandi gráa tóna á skjánum. Hin hefðbundna lopapeysa á það líka sameiginlegt sjónvarpinu að hafa komið fram á svipuðum tímabili tuttugustu aldarinnar, þeim sjötta og sjöunda. Á áttunda áratugnum urðu litirnir allsráðandi á skjánum hér á landi en ullin hélt sínum lit þótt sjónvarpið breytti sínum. MYNDATEXTI Fjölbreytni Handgert frá Icelandic Design, framleitt í Nepal. Fæst í Rammagerðinni, húfan á 3.790 kr., stúkurnar á 2.990 kr. og taskan á 4.690 kr

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar