Uppbygging hjúkrunarheimila

Uppbygging hjúkrunarheimila

Kaupa Í körfu

Það er alveg ljóst að það er mjög mikil uppsöfnuð þörf fyrir hjúkrunarrými. Í þessari áætlun leggjum við mikla áherslu á uppbyggingu á heimahjúkrun og við miðum við að 15% af þeim rýmum sem verða byggð verði tekin í notkun fyrir hvíldarinnlagnir,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, í gær á blaðamannafundi þar sem áætlunin var kynnt. „Við erum að fara langleiðina með þessari áætlun að útrýma fjölbýlum. Það eru mannréttindi að fólk hafi það val að geta verið eitt í hjúkrunarrými,“ sagði Jóhanna um fjölgun einbýla handa öldruðum MYNDATEXTI Ný rými Ríkisstjórnin ætlar að hraða byggingu 400 hjúkrunarrýma og fjölga einbýlum fyrir aldraða.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar