Höfðaborg og Höfði

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Höfðaborg og Höfði

Kaupa Í körfu

TURNINN hái við Höfðatorg rís nú á ógnarhraða til himins en í góðri tíð tekst að steypa eina hæð á um sex dögum, samkvæmt upplýsingum frá fasteignafélaginu Höfðatorgi. Þegar vindurinn blæs af krafti gengur hægar, eins og við er að búast þegar unnið er í svo mikilli hæð og suma vindsama daga hefur ekkert verið hægt að steypa. Alls verður turninn 19 hæðir og ríflega 70 metrar. Gert er ráð fyrir að lokið verði við að steypa gólfplötu 19. hæðarinnar um miðjan nóvember. Ofan á þá hæð kemur síðan lítil bygging fyrir lyftuhús og fleira.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar