Úrslit í stigamóti í badminton

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Úrslit í stigamóti í badminton

Kaupa Í körfu

HELGI Jóhannesson vann hreinlega allt sem í boði var á Opna TBR mótinu í badminton sem fram fór í gær. Helgi vann Magnús Inga Helgason í úrslitum í einliðaleik. Þeir félagar léku svo saman til úrslita í tvíliðaleik gegn þeim Kára Gunnarssyni og Birni Heimissyni og unnu þá viðureign ansi örugglega. Helgi fékk svo sín þriðju gullverðlaun með því að landa sigri í tvenndarleik. Þar keppti hann með Elínu Þóru Elíasdóttur og léku þau til úrslita í þeim flokki gegn Bjarka Stefánssyni og Rakel Jóhannesdóttur. Í kvennaflokki var hin hálfsænska Ida Larusson fremst meðal jafningja þar sem hún hafði sigur bæði í einliðaleik kvenna og einnig í tvíliðaleik MYNDATEXTI Helgi Jóhannesson var góður á Opna TBR- mótinu og vann öll þau verðlaun sem hann gat unnið

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar