Göngum til góðs söfnun

Brynjar Gauti

Göngum til góðs söfnun

Kaupa Í körfu

HERDÍS Sigurjónsdóttir lífeindafræðingur gekk til góðs ásamt öðrum sjálfboðaliðum Rauða krossins í fallegu veðri í gær. Herdís var útsjónarsöm og kom sér fyrir við nýopnaða verslunarmiðstöð á Korputorgi þar sem var stöðugur straumur fólks með veskin uppi við. Því má ætla að söfnunin hafi gengið vel hjá henni og góðhjartaðir vegfarendur látið eitthvað af hendi rakna fyrir góðan málstað af sparnaðinum sem fékkst í opnunartilboðum. Að þessu sinni er safnað í sjóð til að sameina fjölskyldur sem sundrast hafa vegna átaka í Kongó.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar