Glitnir / starfsfólk sýnir samstöðu

Glitnir / starfsfólk sýnir samstöðu

Kaupa Í körfu

STARFSMENN Glitnis sem óhætt er að segja að ekki hafi upplifað aðra eins tíma og að undanförnu í þeim miklu sviptivindum sem geisað hafa í íslensku efnahagslífi, tóku hressilega rispu á bílaplaninu við höfuðstöðvarnar á Kirkjusandi í gær til að létta lundina. Mikið hefur enda mætt á starfsfólkinu sem og reyndar langflestum landsmönnum. Hópknús var réttnefni yfir stund Glitnisfólksins og segja má að slíkar aðgerðir séu ekki síður mikilvægar en formlegar viðræður og björgunaraðgerðir. Aðdragandinn að hópknúsinu var stuttur, en fólk var fljótt að bregðast við og fór út undir bert loft til að fríska sig

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar