Þorkell og Heba
Kaupa Í körfu
SÝNING Þorkels Þorkelssonar ljósmyndara á „íslenskum hryðjuverkamönnum“ hófst í gær í Vetrargarðinum í Smáralind og stendur í tvær vikur – með honum á myndinni er eiginkonan, Heba Soffía Björnsdóttir. Nær 100 manns á öllum aldri urðu við beiðni Þorkels nýlega um að leyfa honum að taka mynd af þeim með vopn sín. Þau reyndust vera margvísleg, nefna má snuddur, penna og snjóbolta. Myndirnar eru 79 talsins. Hugmyndina fékk Þorkell þegar bresk stjórnvöld settu Landsbankann á lista yfir hryðjuverkasamtök. „Mér misbauð þetta uppátæki hjá Brown og Darling, fannst að okkur vegið. Ég hugsaði með mér, hvað get ég gert til að sýna fáránleikann í þessu? Þá datt mér í hug að ef Ísland er komið á hryðjuverkalista hljótum við að vera hryðjuverkamenn. Við skulum þá taka húmorinn í notkun og sýna hverjir þessir hryðjuverkamenn eru, hvernig þeir líta út og hver vopnin eru. Myndirnar ætla ég að birta á heimasíðunni minni, segir Þorkell.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir