Frjálsar íþróttir barna Laugardalshöll

Frjálsar íþróttir barna Laugardalshöll

Kaupa Í körfu

UM 600 keppendur tóku þátt á silfurleikum ÍR í frjálsíþróttum sem fram fóru í Laugardalshöll á laugardag. Mótið er árlegur viðburður hjá ÍR-ingum og er það haldið til þess að minnast silfurverðlauna Vilhjálms Einarsson í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourne í Ástralíu árið 1956. Á síðustu árum hefur þátttakan aukist um 100% en árið 2005 þegar mótið var í fyrsta sinn haldið í nýju frjálsíþróttahöllinni í Laugardal kepptu 300 börn og unglingar. Keppendur koma frá 20 félögum og samböndum alls staðar að af landinu en keppt var í aldursflokkum frá 16 ára og niður í 8 ára og yngri MYNDATEXTI Fremstur Það var ekkert gefið eftir á hlaupabrautinni í Laugardalnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar