Vatnslistaverk í Laugardal afhjúpað eftir viðgerð

Vatnslistaverk í Laugardal afhjúpað eftir viðgerð

Kaupa Í körfu

VIÐGERÐUM á vatnslistaverkinu Fyssu í Grasagarðinum í Reykjavík lauk í gær. Verkið, sem er eftir listakonuna Rúrí, er táknræn mynd af Íslandi en stólparnir tákna flekana tvo sem landið hvílir á. Sökum þess að vatn rennur stöðugt um verkið hafa þörungar léð því græna slikju og var nú verið að hreinsa þá af og bera upprunalega bláa litinn á verkið en efnablandan býr yfir þeim eiginleikum að hamla þörungavexti.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar