Þjóðarskútan afhent í Smáralind

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Þjóðarskútan afhent í Smáralind

Kaupa Í körfu

STARFSMENN Víkurvagna ehf. afhentu í gær Mæðrastyrksnefnd svokallaða Þjóðarskútu sem þeir ákváðu að smíða til styrktar hjálparsamtökunum. Um er að ræða glerjaðan söfnunarkassa með raufum fyrir peninga sem verður í Smáralind fram yfir jól. Finna á síðan skipstjóra á skútuna, það er fjársterkan aðila, sem stutt getur Mæðrastyrksnefnd fjárhagslega og fundið skútunni gott aðsetur fyrir næsta ár. Sá á sem sagt að róa henni á góð mið og afla Mæðrastyrksnefnd fullfermis fjár, að því er fulltrúar Víkurvagna sögðu við afhendinguna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar