Jólatréð sótt í Heiðmörk

Jólatréð sótt í Heiðmörk

Kaupa Í körfu

HEFÐ hefur skapast fyrir því hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur að borgarstjórinn opni jólaskóginn í Heiðmörk. Svo var einnig í gær er Hanna Birna Kristjánsdóttir mætti á svæðið en á undan henni voru m.a. komin þau Ingvar, Ingibjörg, Arnór Breki og Sólveig sem náðu sér í eitt gott jólatré. Helgarnar til jóla geta borgarbúar mætt í Hjalladal milli kl. 11 og 16 og fengið sér í leiðinni heitt kakó og kökur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar