Pósturinn

Pósturinn

Kaupa Í körfu

MAGN bréfapósts nú fyrir jól er mjög svipað því sem verið hefur undanfarin ár, að sögn Ágústu Hrundar Steinarsdóttur, forstöðumanns markaðs- og kynningardeildar Íslandspósts. „Við sjáum álíka mikið magn af bréfapósti og síðastliðin ár en það er einhver samdráttur í pökkum.“ Þyngd þess pósts sem Íslandspóstur hefur tekið við og sent í desember er um 1.200 tonn. Nægur mannskapur hefur verið til að bera út og að sögn Ágústu leggjast allir í fyrirtækinu á eitt til að allt gangi sem best fyrir sig.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar