Harpa Lind Pálsdóttir

Atli Vigfússon

Harpa Lind Pálsdóttir

Kaupa Í körfu

Reykjahverfi | „Það er gaman að fara hér upp í fjallið til þess að finna jólatré til þess að hafa í stofunni og skreyta það síðan mjög flott með allri fjölskyldunni,“ segir Harpa Lind Pálsdóttir, 10 ára, sem á heima á Hveravöllum í Reykjahverfi en hefð er fyrir því að fara og finna tré í brekkunni ofan við bæinn rétt fyrir hátíðina. „Trén eru mjög falleg og það er líka gaman að leika sér í skóginum,“ segir Harpa Lind ennfremur og hlakkar mikið til jólanna. MYNDATEXTI Harpa Lind Pálsdóttir hefur mjög gaman af því að fara í skóginn og finna jólatréð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar