Þykir vænst um elsta jólaskrautið

Steinunni Ósk Kolbeinsdóttur

Þykir vænst um elsta jólaskrautið

Kaupa Í körfu

Rangárþing eystra | Fólk safnar ýmsum hlutum, s.s. frímerkjum, pennum og ýmsu dóti en hún Sigurdís Baldursdóttir í Miðkrika rétt við Hvolsvöll safnar jólaskrauti. Á aðventunni var sýning á ýmsum munum hennar í Héraðsbókasafni Rangæinga. Sigurdís sem alltaf er kölluð Dísa og er frá Torfastöðum í Fljótshlíð, segist reyndar ekki vera með söfnunaráráttu heldur sé hún bara lítið fyrir að henda gömlu og hún reyni líka að nýta ýmislegt sem til falli enda er hún hagleikskona mikil sem hefur gaman að því að föndra og prjóna. MYNDATEXTI Eldgamalt Perlujólaskraut á spýtujólatréi sem Dísa erfði eftir ömmu sína.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar