Jólaball / jólaböll

Skapti Hallgrímsson

Jólaball / jólaböll

Kaupa Í körfu

TIL AÐ auðvelda börnum biðina eftir jólunum eru jólaböll með tilheyrandi söng og dansi haldin í skólum landsins. Ómissandi þáttur á slíkum samkomum er heimsókn frá jólasveini sem gefur börnunum eitthvað gott í gogginn eða lítinn harðan pakka. Börnin eru líka sjálf dugleg að hafa ofan af fyrir sér og gestum t.d. með helgileikjum og söngatriðum. En allt er þetta aðeins upphitun fyrir stóra daginn – sem er einmitt í dag – sjálfur aðfangadagur. MYNDATEXTI Hugfangin Börnin hlustuðu hugfangin á það sem jólasveinninn hafði að segja þegar hann mætti í heimsókn á leikskólann Holtakot á Akureyri. Ekki þótti þeim svo verra að fá að launum pakka frá karlinum rauðklædda.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar