Jólaball á leikskólanum Baug

Valdís Thor

Jólaball á leikskólanum Baug

Kaupa Í körfu

TIL AÐ auðvelda börnum biðina eftir jólunum eru jólaböll með tilheyrandi söng og dansi haldin í skólum landsins. Ómissandi þáttur á slíkum samkomum er heimsókn frá jólasveini sem gefur börnunum eitthvað gott í gogginn eða lítinn harðan pakka. Börnin eru líka sjálf dugleg að hafa ofan af fyrir sér og gestum t.d. með helgileikjum og söngatriðum. En allt er þetta aðeins upphitun fyrir stóra daginn – sem er einmitt í dag – sjálfur aðfangadagur. MYNDATEXTI Karlinum heilsað Börnin á leikskólanum Baugi þurftu ekki að bíða eftir því að sveinki laumaði góðgæti í skóinn - hann mætti með fullan poka af glaðningi sem féll vissulega vel í kramið eins og við var að búast.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar