Jólaball Morgunblaðsins

Jólaball Morgunblaðsins

Kaupa Í körfu

TIL AÐ auðvelda börnum biðina eftir jólunum eru jólaböll með tilheyrandi söng og dansi haldin í skólum landsins. Ómissandi þáttur á slíkum samkomum er heimsókn frá jólasveini sem gefur börnunum eitthvað gott í gogginn eða lítinn harðan pakka. Börnin eru líka sjálf dugleg að hafa ofan af fyrir sér og gestum t.d. með helgileikjum og söngatriðum. En allt er þetta aðeins upphitun fyrir stóra daginn – sem er einmitt í dag – sjálfur aðfangadagur. MYNDATEXTI Af innlifun „Í skóginum stóð kofi einn, sat við gluggann jólasveinn,“ sungu börnin á jólaballi Morgunblaðsins. Mörg barnanna bættu um betur og sýndu mikil tilþrif í leik.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar