Haukar - KR

Haukar - KR

Kaupa Í körfu

HAUKAR áttu ekki í neinum vandræðum þegar þeir heimsóttu lið Fjölnis í Dalhúsin í Grafarvogi í gærkvöldi í síðasta leik 12. umferðar Iceland Express deildar kvenna í körfuknattleik. Lokatölur urðu 81:33 fyrir efsta lið deildarinnar sem hefur fjögurra stiga forystu á Keflavík og Hamar. Fjölnir er í næst neðsta sæti með tvö stig líkt og Snæfell. Ashley Bowman lék ekki með Fjölni og mun ekki leika meira með félaginu. Kristrún Sigurjónsdóttir gerði 17 stig fyrir Hauka, Guðbjörg Sverrisdóttir 15 og Ragna M. Brynjarsdóttir 10 en Birna Eiríksdóttir var með 11 stig hjá Fjölni. MYNDATEXTI Kristrún Sigurjónsdóttir. *** Local Caption *** Kristrún Sigurjónsdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar