Í skíðaskálabrekkunni í Hveradölum

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Í skíðaskálabrekkunni í Hveradölum

Kaupa Í körfu

Á SUÐRÆNNI slóðum leika börnin sér að því að grafa sig í hvíta sanda en á norðurhveli grafa börnin sig í snjóinn eins og þessir krakkar dunduðu sér við í skíðabrekkunni í Hveradölum í gær. Sama sól skín beggja vegna miðbaugs en þó að hún glampi nú skært yfir Íslandi og geri það áfram samkvæmt veðurspá vantar töluvert upp á að hún færi hita í kroppinn. Það kemur þó ekki að sök því landið hefur skartað sínu fegursta í langvarandi froststillum undanfarna daga enda flykkist fólk í skíðabrekkurnar og aðra útivist.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar