Lyfja Ármúla

Lyfja Ármúla

Kaupa Í körfu

MAÐUR var handtekinn seinni partinn í gær eftir að hafa framið vopnað rán í Lyfju í Lágmúla í Reykjavík. Tilkynning barst lögreglu um klukkan 17.10 um ránið, en hann kom inn í verslunina vopnaður öxi og heimtaði að fá ákveðin lyf afhent. Starfsmaður Lyfju elti hann eftir ránið út á götu og gat bent lögreglu á það hvar hann væri niður kominn. Hann komst því ekki langt. Ekki liggur fyrir hvað hann hafði upp úr krafsinu í ráninu sjálfu, en maðurinn er góðkunningi lögreglunnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar