Sölvi Tryggvason

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Sölvi Tryggvason

Kaupa Í körfu

ÞETTA á að vera fjölbreytt, bæði alvöru umræða en líka skemmtun,“ segir Sölvi Tryggvason um nýjan sjónvarpsþátt sinn, Spjallið með Sölva, sem hefur göngu sína á Skjá einum á laugardaginn eftir viku. „Hugmyndin er sú að spyrja spurninganna sem fólkið heima í stofu myndi spyrja. Þetta er bara spurning um að hafa djörfung til að spyrja að öllu, algjörlega umbúðalaust. Mig langar að vera heiðarlegur við viðmælendur, og ég gef þeim tækifæri til að svara. Þetta er sem sagt ekkert mjög ágengt, en ég mun spyrja óþægilegra spurninga, og vonandi spurninga sem menn hafa ekki mikið spurt áður,“ segir Sölvi sem ætlar í sumum tilfellum að hafa einn viðmælanda í viðtali, en stundum fleiri í einu. MYNDATEXTI Spyrill Sölvi mætir með nýþvegnar og straujaðar skyrtur í vinnuna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar